Fasteignir23. júlí 2021

Fasteignavelta í júní 2021

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í júní 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.296 og var upphæð viðskiptanna um 68 milljarður króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í júní 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.296 og var upphæð viðskiptanna um 68 milljarður króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar júní 2021 er borinn saman við maí 2021 fækkar kaupsamningum um 9,9% og velta lækkar um 7,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 6,3% á milli mánaða og velta lækkaði um 6,1%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
68.226
19.523
41.534
4.818
1.213
1.137
Þar af höfuðborgarsvæðið
48.025
 10.033  33.896  3.887  208
0
Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.296
314
850
56
51
25
Þar af höfuðborgarsvæðið
768
100
627
32
9
0

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar