Fasteignir23. ágúst 2021

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí 2021

Í júlí 2021 var 53 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 4.090 milljónir króna.

 
Í júlí 2021 var 53 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 4.090 milljónir króna.

Þar af voru 44 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 4.568 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 3.613 milljónir króna.

Á sama tíma var 44 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.314 milljónir króna.

Þar af voru 24 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.240 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 756 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar