Fasteignir22. september 2021

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í ágúst 2021

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 1,9% frá fyrri mánuði.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 207,8 stig í ágúst 2021 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í ágúst 2021.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 858 samningar, sem þinglýst var í ágúst 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í ágúst 2021 eru því unnar upp úr 658 leigusamningum sem þinglýst var í ágúst 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í ágúst 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4529 3391 2891 2433
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3900 2975 2579 2261
Kópavogur 3242 3179 2634 2430
Garðabær og Hafnarfjörður 3790 3051 2495 2317
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 3958 3021 2607 2368
Breiðholt - 2712 2754 2453
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2767 2330 -
Suðurnes 3119 2656 1800 1582
Vesturland - 2082 1973 1791
Vestfirðir - - - 852
Norðurland nema Akureyri - 1617 1600 1203
Akureyri 2692 2378 1956 1974
Austurland - 2020 1486 -
Suðurland - 2723 2086 1436

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar