Rafrænn aðgangur að kjörskrárstofni er opinn fram að kjördegi svo kjósendur í komandi Alþingiskosningum geti með einföldum hætti kannað hvort þeir eru skráðir á kjörskrá í kosningunum 25. september næstkomandi. Ekki er flett upp í þjóðskrá heldur er flett upp í kjörskrárstofni. Að kjördegi loknum verður lokað fyrir aðgang að uppflettingunni.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Einnig birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Einnig birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild.