Hlutfallslega langmest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tíu mánuði eða um 21,5% en íbúum þar fjölgaði um 14 íbúa enda er þetta sveitarfélag meðal fámennustu sveitarfélaga landsins.Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 16,7% eða um 20 íbúa og Svalbarðshreppi um 4,2%. Þá fækkaði íbúum í 23 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.
Fjölgun í öllum nema einum landshluta
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest var fjölgunin á Suðurlandi eða um 2,8% og á Suðurnesjum um 1,9%.Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.