Fólk04. október 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í október 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.966 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. október sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 688 íbúa á sama tímabili og Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði um 338 íbúa.

Hlutfallslega langmest fjölgun í Helgafellssveit

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tíu mánuði eða um 21,5% en íbúum þar fjölgaði um 14 íbúa enda er þetta sveitarfélag meðal fámennustu sveitarfélaga landsins.   

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 16,7% eða um 20 íbúa og Svalbarðshreppi um 4,2%.  Þá fækkaði íbúum í 23 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum nema einum landshluta 

Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest var fjölgunin á Suðurlandi eða um 2,8% og á Suðurnesjum um 1,9%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar