Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.709 skráða meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.040 meðlimi.
Fjölgar mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 334 meðlimi og í Ásatrúarfélaginu um 311 meðlimi. Mest fækkun var í Zuism eða um 225 meðlimi.Nýtt trúfélag
Nýtt trúfélag var skráð í trúfélagsskráningu þjóðskrár en það er Menningarfélag gyðinga. Nú eru 38 meðlimir skráðir í söfnuðinn. Hins vegar var menningarsetur múslima á Íslandi afskráð.
Alls eru nú 53 trú- og lífsskoðunarfélög skráð.
Alls voru 29.027 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. október sl. eða 4,6% landsmanna.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. október sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020.