Fasteignir22. október 2021

Fasteignavelta í september 2021

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í september 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.237 og var upphæð viðskiptanna um 66,8 milljarður króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í september 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.237 og var upphæð viðskiptanna um 66,8 milljarður króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar september 2021 er borinn saman við ágúst 2021 fjölgaði kaupsamningum um 10% og velta jókst um 18,3%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 12,7% á milli mánaða og velta jókst um 20,5%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
66.793
18.469
38.612
7.867
1.120
728
Þar af höfuðborgarsvæðið
46.462
9.003 30.664 6.514 145
137
Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.237
307
793
74
47
16
Þar af höfuðborgarsvæðið
710
103
555
43
5
4

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar