Fólk01. nóvember 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum 1. nóvember 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.279 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. nóvember sl. eða um 1,7% og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 749 íbúa á sama tímabili eða um 2,0%.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.279 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. nóvember sl. eða um 1,7% og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 749 íbúa á sama tímabili eða um 2,0%.   Á sama tímabili fjölgaði íbúum Akureyrarbæjar um 359 íbúa eða um 1,9%. 
Eftirtektarverð fjölgun hefur orðið meðal íbúa í Hveragerði eða um 194 sem gerir 7,0% fjölgun frá 1. desember sl. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna níu mánuði eða um 21,5% en íbúum þar fjölgaði um 14 íbúa.  
Næst kemur Hörgársveit með 8,6% fjölgun en íbúum í sveitarfélaginu fjölgaði um 56. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 15,0%.  Þá fækkaði íbúum í 20 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum landshlutum 
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega var fjölgunin mest  á Suðurlandi eða um 3,2% og á Suðurnesjum um 2,5%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar