Fólk06. desember 2021

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög í desember 2021

Alls voru 229.314 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 403 einstaklinga síðastliðna 12 mánuði.

 
Alls voru 229.314 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 403 einstaklinga síðastliðna 12 mánuði.  

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.739 skráða og hefur þeim fjölgað um 88 síðastliðið ár eða um 0,6%. 

Fjölgar mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 579 meðlimi eða um 14,3% og í Ásatrúarfélaginu um 406 meðlimi eða um 8,0%.   

Mest hlutfallsleg fjölgun var í hjálpræðishernum trúfélagi eða um 23,6% en nú eru 157 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.139 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. eða 7,8% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. desember sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar