Fasteignir22. desember 2021

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 1,2% á milli mánaða

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 208,4 stig í nóvember 2021 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Fasteignaskrá flutti frá Þjóðskrá til HMS árið 2022. Þetta er gömul frétt sem birt var fyrir þann tíma

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 208,4 stig í nóvember 2021 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og tímaröð fyrir vísitöluna í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2021.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 564 samningar, sem þinglýst var í nóvember 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í nóvember 2021 eru því unnar upp úr 540 leigusamningum sem þinglýst var í nóvember 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í nóvember 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4129 3441 2886 2753
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3674 3158 2746 2442
Kópavogur - 3374 2436 2388
Garðabær og Hafnarfjörður - 2679 2566 2207
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 4206 3232 2573 2420
Breiðholt 3640 2938 2805 2377
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2886 2543 -
Suðurnes - 2715 1962 1624
Vesturland - 2157 1953 1462
Vestfirðir - - 1754 1170
Norðurland nema Akureyri - 2104 1284 1157
Akureyri - 2495 1968 2211
Austurland - - - -
Suðurland - 2245 2248 1544

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á Fasteignagátt Þjóðskrár.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar