Þjóðskrá03. janúar 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum 1. janúar 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.420 íbúa á tímabilinu frá 1. janúar 2021 til 1. janúar 2022 og íbúum Garðabæjar fjölgaði um 760 íbúa á sama tímabili. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á umræddu tímabili um 416.

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tólf mánuði eða um 19,7% en íbúum þar fjölgaði um 13 íbúa.  Næst kemur Tjörneshreppur með 8,9% fjölgun en íbúum í sveitarfélaginu fjölgaði um 5. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 15,1% og Skorradalshreppi um 9,1%.  Þá fækkaði íbúum í 18 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum landshlutum
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest var fjölgunin á Suðurlandi eða um 3,3% og á Suðurnesjum um 3,2%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. janúar 2021 og 2022.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar