Fasteignavelta og fjöldi kaupsamninga
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum fyrir árið 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 16.030 talsins og var upphæð viðskiptanna um 853 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar árið 2021 er borið saman við árið 2020 fjölgar kaupsamningum um 13,6% og velta hækkar um 23,3%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgar samningum um 7,3% á milli ára og velta hækkaði um 18,5%.
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
|
---|---|---|---|---|---|---|
Heildarvelta árið 2021 |
852.694
|
235.870
|
514.742
|
69.819
|
14.110
|
18.170
|
Þar af höfuðborgarsvæðið |
605.132
|
128.218 | 421.288 | 50.162 | 1.461 |
4.001 |
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
|
---|---|---|---|---|---|---|
Kaupsamningar árið 2021 |
16.030
|
3.708
|
10.293
|
1.085
|
601
|
343
|
Þar af höfuðborgarsvæðið |
9.558
|
1.315
|
7.521
|
630
|
51
|
41
|
Meðalkaupverð
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
|
---|---|---|---|---|---|---|
Meðalkaupverð árið 2021 |
53
|
63
|
50
|
64
|
23
|
52
|
Þar af höfuðborgarsvæðið |
63
|
97
|
56
|
79
|
28
|
97
|
Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með fyrirvara um að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til desember mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á fasteignagátt Þjóðskrár.