Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, hefur verið settur forstjóri Þjóðskrár Íslands frá 1. febrúar nk. til sex mánaða. Hann leysir af Margréti Hauksdóttur, forstjóra Þjóðskrár, sem fer í sex mánaða námsleyfi.
Arnar Már Elíasson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, mun á sama tímabili leysa Aðalstein af sem forstjóri Byggðastofnunar.