Fólk07. febrúar 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög í febrúar 2022

Alls voru 229.100 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 166 einstaklinga síðan 1. desember 2021.

 

Alls voru 229.100 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 166 einstaklinga síðan 1. desember 2021.  

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.704 skráða og hefur þeim fækkað um 33 á áðurnefndu tímabili eða um 0,2%. 

Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2021 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 100 meðlimi eða um 2,2% og í Ásatrúarfélaginu um 41 meðlimi eða um 0,7%.   

Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi um 12% en nú eru 177 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.266 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. febrúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar