Fólk09. febrúar 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í febrúar 2022

Erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru hér á landi fjölgaði um 202 einstaklinga frá 1. desember en íslenskum ríkisborgurum um 572 einstaklinga.

 
Alls voru 55.181 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar sl. og fjölgaði þeim um 202 frá 1. desember 2021 eða um 0,4%.
   
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 572 einstaklinga eða um 0,2%. Einstaklingum með afganskt ríkisfang hefur fjölgaði
um 13,9% frá 1. desember sl. og eru nú 238 talsins. Sömuleiðis fjölgaði ríkisborgurum frá Venesúela um 19,1% eða úr 455 í 542 einstaklinga.  

Pólskum ríkisborgurum fækkaði á ofangreindu tímabili um 89 einstaklinga og voru 21.102 talsins um síðustu mánaðarmót eða 5,6% landsmanna.   

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. febrúar sl. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar