Fasteignir16. febrúar 2022

Vísitala leiguverðs hækkar um 1,1% á milli mánaða

Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala leiguverðs hækkað um 5,8%

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 212,2 stig í janúar 2022 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Hægt er að nálgast sömu upplýsingar í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2022.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 639 samningar, sem þinglýst var í janúar 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2022 eru því unnar upp úr 472 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2022.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.


Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4708 3622 3137 2517
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3523 3397 2845 2220
Kópavogur 3617 3164 2556 2093
Garðabær og Hafnarfjörður 4287 2924 2761 2198
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 3908 2849 2592 2354
Breiðholt - 3041 2658 2454
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2725 2569 -
Suðurnes 2619 2548 1898 1850
Vesturland - 2239 1935 1763
Vestfirðir - - - -
Norðurland nema Akureyri - - 1242 -
Akureyri 2732 2197 2129 1654
Austurland - - 1673 1606
Suðurland - 2209 2025 -

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar