Fasteignir21. febrúar 2022

Velta á fasteignamarkaði 52 milljarðar króna í janúar 2022

Velta á fasteignamarkaði ekki verið minni síðan í júní 2020

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 846 og var upphæð viðskiptanna um 52,0 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar janúar 2022 er borinn saman við desember 2021 fækkaði kaupsamningum um 34,7% en velta lækkaði um 38,4%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 36,3% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,6%.

 

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
52.030
15.112
30.182
5.073
988
675
Þar af höfuðborgarsvæðið
38.108
9.064 24.106 4.355 535
47

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
864
196
547
84
18
19
Þar af höfuðborgarsvæðið
531
78
400
50
1
2

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar