Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.718 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 19 á áðurnefndu tímabili eða um 0,1%.
Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 125 meðlimi, sem er 2,7% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi um 12% en nú eru 177 meðlimir skráðir í félaginu.Alls voru 29.325 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. mars sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021.