Fólk04. mars 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög í mars 2022

Alls voru 228.981 einstaklingur skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 285 einstaklinga síðan 1. desember 2021.

 
Alls voru 228.981 einstaklingur skráður í þjóðkirkjuna þann 1. mars sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 285 einstaklinga síðan 1. desember 2021.  

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.718 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 19 á áðurnefndu tímabili eða um 0,1%. 

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 125 meðlimi, sem er 2,7% fjölgun.  Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi um 12% en nú eru 177 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.325 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. mars sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar