Fólk15. mars 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi - mars 2022

Alls voru 55.475 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 496 frá 1. desember 2021 eða um 0,9%.

 
Alls voru 55.475 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 496 frá 1. desember 2021 eða um 0,9%.
   
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 464 einstaklinga eða um 0,1%. 

Einstaklingum með afganskt ríkisfang hefur fjölgaði um 18,2% frá 1. desember sl. og eru nú 247 talsins. Sömuleiðis fjölgaði ríkisborgurum 
frá Venesúela um 25,7% og eru nú 572 einstaklinga.  

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 53 einstaklinga og voru 21.244 talsins um síðustu mánaðarmót eða 5,6% landsmanna.   

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. mars sl. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar