Fólk07. apríl 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög í apríl 2022

Alls voru 228.546 einstaklingar skráður í þjóðkirkjuna þann 1. apríl sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 720 einstaklinga síðan 1. desember 2021.

 

 

Alls voru 228.546 einstaklingar skráður í þjóðkirkjuna þann 1. apríl sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 720 einstaklinga síðan 1. desember 2021.  


Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.709 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 28 safnaðarmeðlimi á ofangreindu tímabili eða um 0,2%. 

Fjölgað langmest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið langmest í Siðmennt eða um 160 meðlimi, sem er 3,5% fjölgun.  Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi eða um 15,2% og eru nú 182 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.383 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna og eru 62.452 einstaklingar með ótilgreinda trúar- eða lífsskoðunarskráningu í þjóðskrá.

Um síðustu mánaðarmót voru 53 trú- og lífsskoðunarfélög skráð í landinu og voru 22 þeirra með innan við 100 skráða félagsmenn. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. apríl sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar