Fasteignir20. apríl 2022

Vísitala leiguverðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í mars lækkar um 0,4% frá fyrri mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 213,3 stig í mars 2022 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,3%.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 213,3 stig í mars 2022 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.  Hægt er að nálgast sömu upplýsingar í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í mars 2022.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 749 samningar, sem þinglýst var í mars 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í mars 2022 eru því unnar upp úr 522 leigusamningum sem þinglýst var í mars 2022.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í mars 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4411 3643 2917 2458
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 4403 3205 2465 2393
Kópavogur 4057 3207 2826 2534
Garðabær og Hafnarfjörður 5443 2978 2710 2220
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur - 3058 2578 2276
Breiðholt - 3052 2682 2476
Kjalarnes og Mosfellsbær - 3125 2726 -
Suðurnes - 2848 2030 1876
Vesturland - 2122 2241 1573
Vestfirðir - - - -
Norðurland nema Akureyri - 1560 1750 829
Akureyri 2675 2464 2152 1870
Austurland - - - -
Suðurland - 2579 1774 1653

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar