Alls voru 228.466 einstaklingur skráður í þjóðkirkjuna þann 1. maí sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 800 einstaklinga síðan 1. desember 2021.
Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.726 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 11 á áðurnefndu tímabili eða um 0,1%.
Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 199 meðlimi, sem er 4,3% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í ICCI trúfélagi um 21,9% en nú eru 306 meðlimir skráðir í félaginu.
Alls voru 29.474 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. maí sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021.