Þjóðskrá minnir á að lokað er á vinnslur í fasteignaskrá á meðan vinna vegna endurmats fasteignamats stendur yfir. Gert er ráð fyrir að þessi lokun standi yfir til 24. maí næstkomandi. Í þessu felst meðal annars að lokað er fyrir skráningu byggingarfulltrúa og staðfestingu eignaskiptasamninga hjá Sýslumönnum.
Vefuppfletti fasteignaskrár er opið á meðan þessu stendur.