Fasteignir18. maí 2022

Vísitala leiguverðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í apríl

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 217,7 stig í apríl 2022 (janúar 2011=100) og hækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Fasteignaskrá flutti frá Þjóðskrá til HMS árið 2022. Þetta er gömul frétt sem birt var fyrir þann tíma

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 217,7 stig í apríl 2022 (janúar 2011=100) og hækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl 2022.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 605 samningar, sem þinglýst var í apríl 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í apríl 2022 eru því unnar upp úr 415 leigusamningum sem þinglýst var í apríl 2022.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í apríl 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4644 3490 3029 2667
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 4271 3656 3070 2609
Kópavogur 3935 3457 2547 2489
Garðabær og Hafnarfjörður - 3191 2447 2471
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 4583 3213 2549 2323
Breiðholt - 2902 2802 2642
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2742 2093 -
Suðurnes - 2845 2046 1848
Vesturland - - - 1730
Vestfirðir - - - -
Norðurland nema Akureyri - - 1728 1230
Akureyri - 2434 2190 1840
Austurland - - - -
Suðurland - 2261 2137 1330

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar