Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.019 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. júní 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 297 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 111 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega eða um 745 íbúa eða um 3,7%.
Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fimm mánuði eða um 18,3% en íbúum þar fjölgaði um 11 íbúa.
Af 65 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 13 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 52 sveitarfélögum.
Fjölgar í öllum landshlutum nema einum
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3,0% sem er fjölgun um 865 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 1,5% á tímabilinu eða um 501 íbúa. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 52 eða um 0,7%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019 - 2021.