Fasteignir22. júní 2022

Vísitala leiguverðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í maí

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 220,8 stig í maí 2022 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði.

Fasteignaskrá flutti frá Þjóðskrá til HMS árið 2022. Þetta er gömul frétt sem birt var fyrir þann tíma

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 220,8 stig í maí 2022 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í maí 2022.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 718 samningar, sem þinglýst var í maí 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í maí 2022 eru því unnar upp úr 528 leigusamningum sem þinglýst var í maí 2022.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í maí 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 5015 3664 2921 2648
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 4124 3430 3048 2574
Kópavogur 4350 3140 2693 2539
Garðabær og Hafnarfjörður 4560 2952 2622 2258
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 3958 3309 2933 2116
Breiðholt 3579 2988 2749 2568
Kjalarnes og Mosfellsbær - 3178 2801 2217
Suðurnes 3869 2713 2081 1834
Vesturland - 2499 1765 1965
Vestfirðir - - - -
Norðurland nema Akureyri - - - -
Akureyri 3085 2369 2084 1655
Austurland - - 1820 -
Suðurland - 2354 2051 2004

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar