Fólk03. ágúst 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - ágúst 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.868 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. ágúst 2022 en íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði um 15 eða 0,3%. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 2.0%.

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.868 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. ágúst 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 432 íbúa.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 141 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.036 íbúa eða um 5,1%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði um 15 eða 0,3%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósahreppi.
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósahrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna átta mánuði eða um 11,8% en íbúum þar fjölgaði um 29 íbúa. 

Af 64 núverandi  sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 10 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 54 sveitarfélögum. 

Fjölgar í öllum landshlutum nema einum
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,3% sem er fjölgun um 1.251 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,7% á tímabilinu eða um 870 íbúa.  Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 5 eða um 0,1%. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 2.0%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum 1.ágúst 2022 og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2021.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar