Fólk07. september 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. september 2022

Alls voru 228.064 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.202 einstaklinga síðan 1. desember 2021.

 

Alls voru 228.064 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.202 síðan 1. desember 2021.

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.726 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 11 á áðurnefndu tímabili eða um 0,1%.

Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið að venju mest í Siðmennt eða um 403 meðlimir, sem er 8,7% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í ICCI trúfélagi, eða um 35,9%, en nú eru 341 meðlimir skráðir í félagið. Einnig varð töluverð hlutfallsleg fjölgun í trúfélaginu Hjálpræðisherinn um 27,2%, en nú eru skráðir 201 meðlimir í félagið.

Alls voru 29.773 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. september sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar