Fólk05. október 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í október 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.952 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. október 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 653 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 266 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.431 íbúa eða um 7,0%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði hins vegar um 39 eða 0,8%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósahrepp
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósahrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tíu mánuði eða um 12,7% en íbúum þar fjölgaði um 31 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða 12,2% en þar fjölgaði íbúum um 26.

Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 10 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 54 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum nema einum
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra þar sem fækkar um 2 einstaklinga. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 5,8% sem er fjölgun um 1.673 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 3,5% á tímabilinu eða um 1.136 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 9.021 frá 1. desember 2021 sem er um 2,8%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2021.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar