Alls skráðu 4.557 einstaklingar flutning innanlands í október til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði um 1,9% þegar 4.647 einstaklingar skráðu flutning innanlands og einnig talsverð fækkun frá sama mánuði á síðasta ári en þá skráðu 4.925 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.840 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.443 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 404 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 304 innan landshlutans og 93 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 444 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 311 innan landshlutans en 71 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.443 | 85 | 83 | 40 | 9 | 50 | 31 | 99 | 2.840 |
Suðurnes | 93 | 304 | 5 | 4 | 2 | 18 | 6 | 7 | 439 |
Vesturland | 46 | 4 | 188 | 1 | 1 | 12 | 12 | 9 | 273 |
Vestfirðir | 24 | 3 | 1 | 68 | 1 | 3 | 0 | 3 | 103 |
Norðurland vestra | 6 | 2 | 1 | 0 | 64 | 5 | 0 | 5 | 83 |
Norðurland eystra | 46 | 2 | 4 | 5 | 4 | 231 | 6 | 4 | 302 |
Austurland | 19 | 1 | 2 | 0 | 1 | 11 | 72 | 6 | 112 |
Suðurland | 71 | 3 | 3 | 2 | 1 | 10 | 4 | 311 | 405 |
Alls til | 2.748 | 404 | 287 | 120 | 83 | 340 | 131 | 444 | 4.557 |