Alls voru 338.124 gild vegabréf þann 1. desember 2022 og voru 91,0% íslenskra ríkisborgara með gild vegabréf. Á sama tíma í fyrra voru 86,1% íslenskra ríkisborgara með gild vegabréf.
Hér má sjá töflu yfir fjölda gildra vegabréfa frá 1. desember 2004. Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.