Fólk14. desember 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í byrjun desember 2022

Alls voru 64.735 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember sl. og fjölgaði þeim um 9.758 frá 1. desember 2021 eða um 17,7%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.564 einstaklinga eða um 0,5%.

 

Alls voru 64.735 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember sl. og fjölgaði þeim um 9.758 frá 1. desember 2021 eða um 17,7%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 862,3,% frá 1. desember 2021 og voru í byrjun mánaðarins alls 2.300 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 2.061 einstaklinga á tímabilinu.

Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 174,9% á umræddu tímabili og eru nú 1.251 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi.

Einnig fjölgaði íbúum frá Palestínu töluvert þ.e. um 156 einstaklinga eða um 96,3%

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 2.124 einstaklinga eða um 10,0% og eru pólskir ríkisborgarar nú 6,0% landsmanna. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.564 einstaklinga eða um 0,5%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2022.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

 
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar