Fólk05. janúar 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum í janúar 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 346 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. janúar 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 20 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 20 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 56 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 47 íbúa.

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 346 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. janúar 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 20 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 20 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 56 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 47 íbúa.  

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi 

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepp fjölgað hlutfallslega mest síðastliðinn mánuð eða um 29,3% en íbúum þar fjölgaði um 17 íbúa. Skorradalshreppur er líka einn af fámennustu hreppum landsins. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kaldrananeshreppi eða 2,7% en þar fjölgaði íbúum um 3 einstaklinga síðastliðinn mánuð.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 25 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í  39 sveitarfélögum.

Fækkar á Norðurlandi

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema Norðurlandi Vestra og Norðurlandi Eystra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Vesturlandi eða um 0,4% sem er fjölgun um 72 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 0,1% á tímabilinu eða um 40 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 664 frá 1. desember 2022 til. 1. janúar 2023 sem er um 0,2%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022. Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.                                                                                                                                                        


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar