Alls voru 65.118 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar sl. og fjölgaði þeim um 533 frá 1. desember 2022 eða um 0,8%.
Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 11,3,% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 2.521 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 256 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 48 einstaklinga á umræddu tímabili og eru nú 3.671 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 49 einstaklinga eða um 0,2% og eru pólskir ríkisborgarar nú 23.345.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 131 einstaklinga. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. janúar 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022 .
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.