Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1070 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 137 íbúa. Íbúum í Hafnarfjarðarkaupstað hefur fjölgað um 170 íbúa og í Garðabæ fjölgaði um 123 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 55 íbúa.
Fjölgar mest í Reykjanesbæ utan höfuðborgarsvæðisins
Þegar horft er til heildarfjölda breytinga á íbúafjölda utan höfuðborgarsvæðisins þá hefur íbúum í Reykjanesbæ fjölgað mest frá 1. desember 2022 eða um 400 íbúa. Næst mest fjölgaði íbúum í Sveitarfélaginu Árborg eða um 109 íbúa og íbúum í Borgarbyggð fjölgaði um 103 á sama tímabili.
Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Kaldrananeshrepp eða um 6,2% og næst mest í Skorradalshreppi eða 5,2% miðað við tölur 1. desember 2022 til 1. mars 2023. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 15 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 49 sveitarfélögum.
Fækkar á Vestfjörðum
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum og Norðurlandi Vestra. Á Vestfjörðum fækkar um 0,1% eða 5 íbúa en á Norðurlandi Vestra er hlutfallsleg fækkun nánast engin en þar fækkar um 1 íbúa. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 1,7% sem er fjölgun um 538 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 1581 frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023 sem er um 0,6%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022. Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.