Alls skráðu 3.717 einstaklingar flutning innanlands í febrúar til Þjóðskrár. Þetta er talsverð fækkun frá síðasta mánuði eða um 14,3% þegar 4.335 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuði á síðasta ári var fækkunin um 4,0% en þá skráðu 3.871 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.397 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.046 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 386 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 256 innan landshlutans og 100 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 292 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 200 innan landshlutans en 78 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.046 | 123 | 69 | 11 | 20 | 43 | 16 | 69 | 2.397 |
Suðurnes | 100 | 256 | 16 | 1 | 2 | 6 | 1 | 4 | 386 |
Vesturland | 30 | 1 | 110 | 1 | 2 | 5 | 2 | 3 | 154 |
Vestfirðir | 17 | 1 | 1 | 40 | 1 | 1 | 0 | 1 | 62 |
Norðurland-Vestra | 12 | 0 | 0 | 1 | 43 | 6 | 0 | 0 | 62 |
Norðurland-Eystra | 27 | 1 | 1 | 0 | 0 | 247 | 3 | 0 | 279 |
Austurland | 11 | 1 | 0 | 0 | 0 | 5 | 62 | 6 | 85 |
Suðurland | 78 | 3 | 1 | 0 | 0 | 5 | 5 | 200 | 292 |
Alls til | 2.321 | 386 | 198 | 54 | 68 | 318 | 89 | 283 | 3.717 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.