Emil var vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 42 drengjum var gefið nafnið Emil, næst vinsælustu nöfnin voru Viktor og Aron.
Embla var vinsælasta nafnið meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 30 stúlkum var gefið nafnið Embla, þar á eftir voru nöfnin Aþena og Emma.
Hægt er að sjá nánara niðurbrot í Þjóðskrárgáttinni
Vinsælustu fyrstu eiginnöfnin 2022
Samanburður milli ára
Ef horft er á samanburð milli ára má sjá að drengjanafnið Emil tekur fyrsta sætið af Aron. Viktor tekur stökk frá þrítugasta sæti í annað sæti og Birnir hækkar verulega. Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Embla heldur fyrsta sætinu, í öðru sæti er Aþena sem hækkar um nokkur sæti og í því þriðja er Emma. Nafnið Lilja tekur hástökk á milli ára, fer úr 68. sæti í það fjórða.
Nafn | 2022 | 2021 | Breyting |
Emil | 1 | 5 | |
Viktor | 2 | 30 | |
Aron | 3 | 1 | |
Birnir | 4 | 14 | |
Jökull | 5 | 2 | |
Alexander | 6 | 3 | |
Erik | 7 | 66 | |
Matthías | 8 | 9 | |
Jón | 9 | 6 | |
Kári | 10 | 4 |
Nafn | 2022 | 2021 | Breyting |
Embla | 1 | 1 | |
Aþena | 2 | 6 | |
Emma | 3 | 14 | |
Lilja | 4 | 68 | |
Matthildur | 5 | 5 | |
Sara | 6 | 3 | |
Emilía | 7 | 2 | |
Anna | 8 | 13 | |
Katla | 9 | 7 | |
Ylfa | 10 | 50 |
Algengustu fyrstu eiginnöfnin
Algengustu fyrstu eiginnöfnin á landinu má sjá hér að neðan og er röðun nafna óbreytt á milli ára. Með algengustu fyrstu eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga. Fjöldatölur miðast við 22. mars 2023.
Röð | Nafn | Fjöldi |
1 | Anna | 6.210 |
2 | Jón | 5.630 |
3 | Guðrún | 4.975 |
4 | Sigurður | 4.481 |
5 | Guðmundur | 4.241 |
6 | Kristín | 3.890 |
7 | Sigríður | 3.537 |
8 | Gunnar | 3.509 |
9 | Margrét | 3.206 |
10 | Helga | 3.057 |
Fjöldi einstaklinga sem fæddust árið 2022 og var gefið annað eiginnafn var 3.469 eða 80% af heildinni. Þór var vinsælasta nafnið meðal drengja en þar á eftir eru það nöfnin Hrafn og Máni. Vinsælasta nafnið meðal stúlkna var Rós og næst vinsælasta nafnið er Sól og í þriðja sæti er Ósk.
Hægt er að sjá nánara niðurbrot í Þjóðskrárgáttinni
Vinsælustu önnur eiginnöfn 2022
Samanburður milli ára
Ef horft er á samanburð milli ára má sjá að drengjanafnið Þór stendur í stað frá fyrra ári og heldur fyrsta sæti. Hrafn fer úr níunda sæti í annað og Máni stendur í stað í því þriðja. Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Rós trónir aftur á toppnum. Sól hækkar úr fimmta sæti í annað sætið og Ósk stendur í stað frá fyrra ári.
Nafn | 2022 | 2021 | Breyting |
Þór | 1 | 1 | |
Hrafn | 2 | 9 | |
Máni | 3 | 3 | |
Leó | 4 | 7 | |
Ingi | 5 | 6 | |
Logi | 6 | 4 | |
Kári | 7 | 10 | |
Elí | 8 | 13 | |
Örn | 9 | 8 | |
Orri | 10 | 5 |
Nafn | 2022 | 2021 | Breyting |
Rós | 1 | 1 | |
Sól | 2 | 5 | |
Ósk | 3 | 3 | |
María | 4 | 4 | |
Líf | 5 | 10 | |
Lilja | 6 | 8 | |
Rún | 7 | 6 | |
Björk | 8 | 2 | |
Margrét | 9 | 29 | |
Lóa | 10 | 14 |
Algengustu önnur eiginnöfnin
Algengustu önnur eiginnöfnin á landinu má sjá hér að neðan og er röðun nafna óbreytt á milli ára. Með algengustu önnur eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga. Fjöldatölur miðast við 22. mars 2023.
Röð | Nafn | Fjöldi |
1 | Þór | 8.303 |
2 | Örn | 4.618 |
3 | Björk | 4.196 |
4 | Ósk | 4.149 |
5 | María | 4.143 |
6 | Ingi | 3.831 |
7 | Már | 3.542 |
8 | Freyr | 3.403 |
9 | Kristín | 2.859 |
10 | Björg | 2.505 |