Fólk05. apríl 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. apríl 2023

Yfir 40.000 íbúar eru nú skráðir í Kópavogsbæ sem er annað stærsta sveitarfélagið á landinu. Þriðja stærsta sveitarfélagið er Hafnarfjarðarkaupstaður með rúmlega 30.000 íbúa.

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.450 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. apríl 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 221 íbúa og eru nú yfir 40.000 íbúar í Kópavogsbæ. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 91 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 594 íbúa og í Hafnarfjarðarkaupstað fjölgaði um 199 íbúa frá 1.desemeber 2022 til 1. apríl 2023.  

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 5,2% en íbúum þar fjölgaði um 6 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 5,2% en þar fjölgaði íbúum um 3 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 15 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 49 sveitarfélögum.

Fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 2,4% sem er fjölgun um 742 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 3.582 frá 1. desember 2022 til. 1. apríl 2023 sem er um 0,9%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar