Alls skráðu 4.022 einstaklingar flutning innanlands í febrúar til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 8,2% þegar 3.717 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuði á síðasta ári var fækkunin um 16% en þá skráðu 4.788 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.530 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.202 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 397 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 257 innan landshlutans og 105 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 339 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 248 innan landshlutans en 70 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.202 | 115 | 49 | 19 | 13 | 46 | 14 | 72 | 2.530 |
Suðurnes | 105 | 257 | 15 | 1 | 0 | 11 | 1 | 7 | 397 |
Vesturland | 41 | 5 | 153 | 1 | 2 | 6 | 0 | 4 | 212 |
Vestfirðir | 9 | 5 | 4 | 48 | 1 | 2 | 0 | 0 | 69 |
Norðurland-Vestra | 12 | 1 | 3 | 2 | 51 | 6 | 3 | 1 | 79 |
Norðurland-Eystra | 35 | 5 | 7 | 0 | 2 | 224 | 8 | 7 | 288 |
Austurland | 9 | 1 | 2 | 0 | 0 | 5 | 86 | 5 | 108 |
Suðurland | 70 | 10 | 3 | 2 | 3 | 1 | 2 | 248 | 339 |
Alls til | 2.483 | 399 | 236 | 73 | 72 | 301 | 114 | 344 | 4.022 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.