Alls skráðu 3.590 einstaklingar flutning innanlands í apríl til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 10,7% þegar 4.022 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári var fækkunin um 11,8% en þá skráðu 4.068 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.337 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 1.999 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 351 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 210innan landshlutans og 113 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 249lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 185 innan landshlutans en 39 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 1.999 | 105 | 62 | 25 | 7 | 29 | 20 | 90 | 2.337 |
Suðurnes | 113 | 210 | 15 | 1 | 0 | 7 | 0 | 5 | 351 |
Vesturland | 26 | 2 | 91 | 3 | 1 | 2 | 6 | 3 | 134 |
Vestfirðir | 10 | 2 | 0 | 34 | 2 | 3 | 3 | 1 | 55 |
Norðurland-Vestra | 7 | 2 | 0 | 0 | 55 | 3 | 0 | 1 | 68 |
Norðurland-Eystra | 27 | 0 | 2 | 1 | 5 | 238 | 8 | 4 | 285 |
Austurland | 15 | 1 | 1 | 1 | 0 | 4 | 88 | 1 | 111 |
Suðurland | 39 | 8 | 3 | 2 | 1 | 8 | 3 | 185 | 249 |
Alls til | 2.236 | 330 | 174 | 67 | 71 | 294 | 128 | 290 | 3.590 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.