Alls skráðu 3.945 einstaklingar flutning innanlands í júlí til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 13,3% þegar 4.552 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári var fækkunin um 3,5% en þá skráðu 4.086 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.767 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.304 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 324 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 176 innan landshlutans og 107 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 82 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu engin innan landshlutans en 54 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.304 | 146 | 70 | 20 | 16 | 51 | 35 | 125 | 2.767 |
Suðurnes | 107 | 176 | 5 | 2 | 1 | 12 | 8 | 13 | 324 |
Vesturland | 46 | 1 | 141 | 0 | 5 | 3 | 0 | 6 | 202 |
Vestfirðir | 19 | 1 | 1 | 46 | 2 | 1 | 0 | 4 | 74 |
Norðurland-Vestra | 13 | 0 | 4 | 3 | 67 | 3 | 0 | 6 | 96 |
Norðurland-Eystra | 46 | 4 | 1 | 1 | 3 | 199 | 11 | 7 | 272 |
Austurland | 33 | 6 | 0 | 0 | 1 | 17 | 69 | 2 | 128 |
Suðurland | 54 | 8 | 11 | 1 | 2 | 1 | 5 | 0 | 82 |
Alls til | 2.622 | 342 | 233 | 73 | 97 | 287 | 128 | 163 | 3.945 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.