Alls voru 226.428 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.041 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.115 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.954 skráða meðlimi.
Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2022 til 1. september 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi verið mest í Siðmennt eða um 344 meðlimi, sem er um 6,4% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni um 266 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 138%, en nú eru 69 meðlimir skráðir í félagið.
Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 30.467 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 2,2% hækkun frá 1.des 2022. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 80.258 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.