Alls voru 72.791 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október sl. og fjölgaði þeim um 8.206 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 12,7%.
Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 59,1% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.604 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 1.339 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Palestínu eða um 53,9% sem eru 167 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 477 einstaklingar með palestínskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 2.164 einstaklinga eða um 9,3% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 25.460 samtals.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.470 einstaklinga eða um 0,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. október 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.