Alls skráðu 4.482 einstaklingar flutning innanlands í september til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 15,2% þegar 5.284 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári var fækkunin um 3,6% en þá skráðu 4.647 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.825 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.431 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 366 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 240 innan landshlutans og 99 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 402 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 286 innan landshlutans en 73 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.431 | 101 | 54 | 19 | 20 | 64 | 25 | 111 | 2.825 |
Suðurnes | 99 | 240 | 5 | 2 | 1 | 5 | 6 | 8 | 366 |
Vesturland | 41 | 1 | 108 | 7 | 0 | 2 | 12 | 21 | 192 |
Vestfirðir | 20 | 0 | 6 | 67 | 4 | 3 | 0 | 5 | 105 |
Norðurland-Vestra | 13 | 2 | 5 | 0 | 44 | 3 | 1 | 3 | 71 |
Norðurland-Eystra | 51 | 12 | 1 | 0 | 7 | 316 | 5 | 11 | 403 |
Austurland | 13 | 5 | 1 | 2 | 0 | 12 | 79 | 6 | 118 |
Suðurland | 73 | 14 | 7 | 3 | 1 | 13 | 5 | 286 | 402 |
Alls til | 2.741 | 375 | 187 | 100 | 77 | 418 | 133 | 451 | 4.482 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.