Alls skráðu 4.554 einstaklingar flutning innanlands í október til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 1,6% þegar 4.482 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan nánast sú sama þegar 4.557 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.736 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.375 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 548 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 363 innan landshlutans og 129 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 359 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 248 innan landshlutans en 85 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.375 | 122 | 37 | 18 | 9 | 55 | 14 | 106 | 2.736 |
Suðurnes | 129 | 363 | 12 | 2 | 0 | 10 | 5 | 27 | 548 |
Vesturland | 30 | 5 | 146 | 3 | 0 | 2 | 0 | 11 | 197 |
Vestfirðir | 22 | 1 | 4 | 64 | 0 | 4 | 0 | 1 | 96 |
Norðurland-Vestra | 18 | 0 | 1 | 0 | 53 | 3 | 0 | 1 | 76 |
Norðurland-Eystra | 62 | 5 | 0 | 5 | 4 | 349 | 8 | 8 | 441 |
Austurland | 14 | 4 | 0 | 2 | 1 | 2 | 74 | 4 | 101 |
Suðurland | 85 | 13 | 1 | 1 | 0 | 8 | 3 | 248 | 359 |
Alls til | 2.735 | 513 | 201 | 95 | 67 | 433 | 104 | 406 | 4.554 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.