Alls voru 225.902 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.567 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.317 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.958 skráða meðlimi.
Fjölgað mest í Kaþólsku kirkjunni
Frá 1. desember 2022 til 1. desember 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 468 meðlimi, sem er um 3,2% fjölgun en næst mest í Siðmennt um 445 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 193%, en nú eru 85 meðlimir skráðir í félagið.
Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 30.557 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 2,5% hækkun frá 1.des 2022. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 82.795 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.