Alls skráðu 3.789 einstaklingar flutning innanlands í desember til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 10% þegar 4.209 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun uppá 3,7% þegar 3.933 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.516 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.251 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 409 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 245 innan landshlutans og 129 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 266 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 169 innan landshlutans en 73 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.251 | 94 | 27 | 20 | 13 | 27 | 14 | 70 | 2.516 |
Suðurnes | 129 | 245 | 2 | 1 | 0 | 8 | 3 | 21 | 409 |
Vesturland | 24 | 3 | 99 | 0 | 1 | 2 | 0 | 6 | 135 |
Vestfirðir | 15 | 0 | 8 | 41 | 0 | 2 | 2 | 1 | 69 |
Norðurland-Vestra | 15 | 0 | 1 | 0 | 27 | 2 | 0 | 0 | 45 |
Norðurland-Eystra | 33 | 0 | 1 | 0 | 4 | 194 | 9 | 5 | 246 |
Austurland | 26 | 2 | 0 | 0 | 0 | 2 | 66 | 7 | 103 |
Suðurland | 73 | 8 | 8 | 0 | 1 | 4 | 3 | 169 | 266 |
Alls til | 2.566 | 352 | 146 | 62 | 46 | 241 | 97 | 279 | 3.789 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.