Alls skráðu 4.215 einstaklingar flutning innanlands í janúar til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 11,2% þegar 3.789 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun uppá 2,8% þegar 4.335 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.671 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.326 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 404 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 263 innan landshlutans og 106 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 358 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 267 innan landshlutans en 70 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.326 | 123 | 52 | 19 | 13 | 47 | 15 | 76 | 2.671 |
Suðurnes | 106 | 263 | 15 | 1 | 0 | 11 | 1 | 7 | 404 |
Vesturland | 42 | 5 | 162 | 1 | 2 | 6 | 0 | 4 | 222 |
Vestfirðir | 9 | 5 | 4 | 52 | 1 | 2 | 0 | 0 | 73 |
Norðurland-Vestra | 13 | 1 | 3 | 2 | 51 | 6 | 3 | 1 | 80 |
Norðurland-Eystra | 36 | 5 | 7 | 0 | 2 | 231 | 8 | 7 | 296 |
Austurland | 9 | 1 | 2 | 0 | 0 | 5 | 89 | 5 | 111 |
Suðurland | 70 | 10 | 3 | 2 | 3 | 1 | 2 | 267 | 358 |
Alls til | 2.611 | 413 | 248 | 77 | 72 | 309 | 118 | 367 | 4.215 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.